Jæja eru ekki allir búnir að fá koss frá ástinni sinni, súkkulaði og rósir?
Hér á bæ var nú ekki haldið neitt sérstaklega upp á daginn nema bara með því að ræða væntanlegt brúðkaup og skipuleggja í kringum það

Bara gaman.
Síðustu tvær helgar hafa verið átveislur miklar, farið í afmæli laugardag og sunnudag, tvær helgar í röð - geri aðrir betur! Held að maður sé hreinlega komin með vömb af öllu þessu áti! Svo eru enn fleiri afmæli framundan...
Í sumar hefst mikið ævintýri - síldarævintýri á Siglufirði

En þar hefur mér boðist að gera lokaverkefni mitt í hagnýtri menningarmiðlun sem ég stefni á að landa í október
Rósa sísaltandi síldarstúlka