... mér finnst eins og páskarnir hafi verið bara í síðustu viku - ég get svarið það! Páskafríið var mjög ljúft norðan heiða, það var farið í heimsóknir til vina og ættingja, slappað af í sveitinni hjá mömmu og pabba, farið í leikhús á Fló á skinni og grenjað af hlátri, farið í vettvangsferð til Siglufjarðar, farið í heimsókn til Steina PÉ og fleira skemmtilegt

Þegar heim var komið biðu mín tveir góðir menn úr Vestmannaeyjum, annar þeirra er skipasmiður en hinn er í stjórn sjómannadagsráðs í Eyjum. Það voru sem sagt tvö viðtöl tækluð sama daginn, annað vegna vinnunnar, hitt vegna útvarpsþáttar sem ég er að vinna að þessa dagana. Fullt af spennandi verkefnum í gangi. Hef reyndar verið haldin einhverjum verkkvíða undanfarið en nú er komin tími til að spýta í lófana eins og þar stendur...
Sýningarhópurinn í Hagnýtri menningarmiðlun fór í allsherjar sýningarferð um Suðurnesin í lok mars. Það var bara skemmtilegt og fengum við Eydís að fljóta með mæðgunum og sæta voffanum þeirra

Það var farið á Saltfisksetrið í Grindavík, og Björn, sýningarhönnuður fræddi okkur um leyndardóma sýningarinnar. Eftir það fórum við út að borða í hádeginu og síðan var haldið í Fræðasetrið í Sandgerði og loks farið í Duus hús í Reykjanesbæ. Rokksýningin rokkaði ekki feitt að mínu mati, en hitt stóð alveg fyrir sínu, meira að segja svona í annað sinn.
Ræðuhópurinn í Hagnýtri menningarmiðlun stóð fyrir ráðstefnu í byrjun apríl undir heitinu "Menningarbræðingur." Góður bræðingur þar á ferð, og virkilega skemmtilegt að heyra ólík erindi. Ég og Eydís vorum ráðstefnustjórar og kynntum erindi hinna, og líka hvor hjá annarri
Í apríl er ég líka búin að fara á ráðstefnu í Þjóðmenningarhúsinu, eiga fund með formanni Íslenska vitafélagsins, hlusta á Árna Björnsson tala um pyntingar, fara á málstofu mastersnema í sagnfræði, fara í þriðja sinn í Saltfisksetrið, fara í mæðraskoðun, fagna afmæli tengdamömmu og fara í frábæra sumarbústaðaferð

-Það skelfilegasta var kviksetningin á Þjóðminjasafninu
-Það áhugaverðasta var farandverkafólkið á ormétnum dínum
-Það yndislegasta var að heyra hjartslátt barnsins sem vex innan í mér

-Það skemmtilegasta var að eiga tíma með stelpunum í bústað